Actavis sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og sölu samheitalyfja. Actavis starfar í yfir 40 löndum en höfuðstöðvarnar eru á Íslandi.

Umsagnir viðskiptavina

  • "SAP starfsmannakerfið hefur reynst Actavis á Íslandi vel. Notkun kerfisins og samhæfing sparar okkur tíma og gerir okkur kleift að ná góðri yfirsýn yfir fyrirtækið frá mismunandi sjónarhornum. Við getum í dag brugðist hratt við kröfum stjórnenda um mismunandi tölfræði upplýsingar um allt er lýtur að starfsmannamálum. Starfsmenn hafa einnig aðgang að eigin upplýsingum og geta sjálfir viðhaldið sínum persónulegu gögnum. Kerfið styður vel við alla okkar ferla í kringum starfsmenn. Samhæfing við kerfi tölvudeildar einfaldar móttöku nýrra starfsmanna og eykur öryggi þegar starfsmenn flytjast til eða yfirgefa fyrirtækið."
    Kolbrún Reynisdóttir, Human Resource Division, Actavis
  • “Ég vil lýsa yfir einstakri ánægju með innleiðinguna, hún stóðst eins og stafur við bók og hefur verið einhver árangursríkasta uppsetning hugbúnaðar hjá Actavis”
    Úlfar Helgason, deildarstjóri upplýsingatæknisviðs Actavis hf.