Samherji hf. er í hópi sjávarútvegsfyrirtækja og byggist rekstur félagsins á sjófrystingu, landvinnslu á bolfiski, rækjuvinnslu, fiskeldi og markaðs- og sölustarfsemi.
Applicon þróaði lausn í samvinnu við Samherja og Marel.
Lausnin var þróuð af Applicon, í samvinnu við Samherja og Marel, og tekur sérstaklega tillit til þeirra margvíslegu breytinga sem átt hafa sér stað í íslenskum sjávarútvegi á undanförnum árum.
Applicon lausnir fyrir sjávarútvegsfyrirtæki eru Applicon Sjávarútvegur og Applicon Laun Sjávarútvegur, sem sérstaklega hefur verið aðlöguð að sjávarútvegsfyrirtækjum.
Umsagnir viðskiptavina
-
Innleiðing SAP hjá Samherja hf.
“Ég verð að játa að ég hef aldrei heyrt um innleiðingu jafn viðamikils kerfis sem gengið hefur jafn vel og þarna hefur átt sér stað. Mér finnst sérstök ástæða til að óska starfsmönnum Samherja, sem þarna stóðu að verki til hamingju með þennan árangur svo og Nýherja h/f. sem kerfið er keypt af.”
Úr ræðu Finnboga Jónssonar stjórnarformanns Samherja hf. á aðalfundi í apríl 2003
-
Innleiðing SAP hjá Samherja hf.
“SAP-hugbúnaðarkerfi var tekið í notkun hjá Samherja snemma árs 2003. Með tilkomu kerfisins gerbreyttist upplýsingaflæði í félaginu til hins betra. Kerfið auðveldar áætlanagerð og eykur alla yfirsýn yfir framleiðsluna og reksturinn. Allt frá því að ákvörðun um innleiðingu kerfisins var tekin höfum við aldrei horft til baka og ég er í dag sem fyrr sannfærður um að við tókum rétta ákvörðun”
Úr ræðu Þorsteins Más Baldvinssonar forstjóra Samherja á aðalfundi árið 2004
