Árið 1997 hóf Nýherji hf. sölu á SAP hugbúnaði á Íslandi. Fyrsti viðskiptavinur félagsins var fyrirtækið Póstur & Sími sem síðar skiptist upp í Íslandspóst og Símann sem enn eru meðal stærstu notenda SAP viðskiptahugbúnaðarins á Íslandi. 

Í október 2005 keypti Nýherji allt hlutafé í Applicon A/S í Danmörku, stærsta samstarfsaðila SAP þar í landi. Samhliða kaupunum á Applicon A/S var stofnað sérstakt félag um starfsemi hugbúnaðarlausna Nýherja hér á landi undir nafninu Applicon ehf. Kaupin voru liður í að styðja við starfsemi sem tengdist erlendum verkefnum hugbúnaðarsviðs Nýherja á sviði SAP lausna, ekki síst fyrir fyrirtæki erlendis. Jafnframt var ætlunin að skapa forsendur fyrir aukna sölu SAP- og Microsoft lausna á erlendum mörkuðum.

Applicon starfrækir í dag skrifstofur á Íslandi, Danmörku og í Svíþjóð.  Hver skrifstofa Applicon veitir fjölbreyttum hópi viðskiptavina þjónustu á sínum heimamarkaði. Hjá Applicon fyrirtækjunum starfar hópur vel menntaðs fólks með mikla reynslu af störfum í fjölmörgum atvinnugreinum. Lögð er áhersla á að ráðgjafar Applicon búi yfir sérþekkingu á sviði þeirra fyrirtækja sem þau starfa fyrir sem og á sviði upplýsingatækni.