Applicon ehf.
Applicon ehf. á Íslandi sérhæfir sig í ráðgjöf, þjónustu og þróun lausna fyrir SAP, Vigor- og Microsoft hugbúnað. Fyrirtækið hefur þróað fjölmarga lausnapakka fyrir einstaka atvinnugreinar, s.s. sveitarfélög, sjávarútvegsfyrirtæki, fjármálafyrirtæki, orkufyrirtæki og á sviði launa- og mannauðslausna. Hjá fyrirtækinu starfa rúmlega 50 manns.
Applicon ehf. er í eigu Applicon Holding sem er eignarhaldsfélag um eignarhluti Nýherja í Applicon félögunum fjórum. Starfsstöðvar Applicon eru á Íslandi, Danmörku og í Svíþjóð.
Hlutverk Applicon ehf.
Hlutverk Applicon á Íslandi er að efla viðskiptavini við að ná markmiðum sínum með stöðluðum en sveigjanlegum viðskiptahugbúnaði og faglegri ráðgjöf og þjónustu.
Framtíðarsýn Applicon ehf.
Að vera leiðandi á sviði sölu og þjónustu viðskiptahugbúnaðar á Íslandi.
Applicon vill vera besti vinnustaðurinn fyrir starfsmenn á því sérsviði sem fyrirtækið starfar á.
