Applicon i-Banking
Applicon i-Banking er rammi fyrir nútíma netbankalausnir byggður til uppfylla kröfur varðandi framsetningu, virkni og öryggi fyrir fjármálastofnanir sem og viðskiptavini.

Lausnin samanstendur í grunninn af tvennum lögum: i-Banking Service Hub og i-Banking Portal. 

i-Banking Service Hub
i-Banking Service Hub er samskiptalag lausnarinnar og sér um að tengjast bakendakerfum eins og til dæmis SAP og Reiknistofu Bankanna.  Samskiptalagið nýtir sér WCF tæknina frá Microsoft og getur þannig tengst á hraðvirkan og öruggan hátt öllum SOA kerfum. Ytra lag lausnarinnar, i-Banking Portal, hefur eingöngu samband við Service Hub og gerir þannig mjög auðvelt að tryggja öryggi lausnarinnar út á við. 

i-Banking Portal
i-Banking Portal er viðmótslag lausnarinnar og sækir upplýsingar frá Service Hub. Framsetning gagna nýtir sér staðlaða viðmótshluti sem uppfylla þær kröfur sem notendur gera í dag varðandi gagnvirkni, hraða og útlit. Jafnframt fylgir með þjónustulag fyrir rekstur lausnarinnar. Þar er hægt að stofna og stýra aðgangi notenda að mismunandi virkni. Auk þess geta kerfisstjórar fylgst með öllum keyrslum í kerfinu sem og tilraunum til að brjótast inn í það.

Sveigjanleiki hefur verið hafður að leiðarljósi við hönnun lausnarinnar með það langtímamarkmið að bjóða upp á lausn sem hentar fyrir framsetningu gagna úr hvers kyns gögnum fyrir viðskiptavini fjármálastofnanna. Lausnin býður nú þegar upp á hefðbundna netbankavirkni eins og innlán og millifærslur sem og eignayfirlit (e.portfolio overview). Auðvelt er bæði að bæta við lausnina stuðningi við önnur bakendakerfi sem og nýrri virkni. Lausnin er útfærð samkvæmt bestu ferlum frá Microsoft og nýjustu tækni frá Microsoft (NET 3.5 og ASP.NET 3.5).

Öryggismál er stór hluti af lausninni. Öll samskipti eru dulkóðuð, tveggja þátta innskráning notenda er studd sem og auðkennisskírteini sem og SSL samskipti gagnvart notenda. Jafnframt hefur lausnin staðist fjölda öryggisúttekta af viðurkenndum fagaðilum.