Hvernig geta fyrirtæki tryggt öruggt verklag og eftirlit með verðbréfaviðskiptum starfsmanna?

Applicon PeTra
Að hafa góða stjórn á verðbréfaviðskiptum starfsmanna og fylgja regluverki um innherjaviðskipti getur verið mikið og vandasamt verk. Til að geta svarað fyrirspurnum starfsmanna um verðbréfaviðskipti þarf að kanna hvort viðskipti samræmist reglum. Skoða þarf ýmsa þætti eins og fyrri viðskipti starfsmans, eignir starfsmans og tengsl starfsmanns við aðra aðila. Þetta ferli getur verið tímafrekt og því erfitt að svara fyrirspurnum starfsmanna tímanlega. Applicon PeTra einfaldar þetta ferli til muna með því að halda utan um öll verðbréfaviðskipti starfsmanna („Personal Transactions“ sem nafnið PeTra er dregið af).


Helstu eignileikar

  • Allar upplýsingar um verðbréfaviðskipt starfsmanna á einum stað
  • Þægilegt vefviðmót sem starfsmenn geta nýtt sér til þess að gera fyrirspurnir um verðbréfaviðskipti
  • Regluvörður getur vaktað viðskipti í PeTra og fengið tilkynningar ef einhverjir viðburður þarfnast nánari skoðunar
  • Hægt að stilla upp mismunandi reglum fyrir mismunandi svið innan fyrirtækis
  • Hægt að flytja gögn inn og úr kerfinu til samþættingar við önnur kerfi
    Hægt að aðlaga kerfið fyrir bæði innlend og erlend regluverk og markaði

Helstu ávinningur

  • Sparar umtalsverðan tíma hjá regluverði
  • Betri yfirsýn yfir verðbréfaviðskipti starfsmanna
  • Einfaldar eftirfylgni reglna um verðbréfaviðskipti starfsmanna

Upplýsingar um PeTra
á ensku
á sænsku