Yfirlitsmynd viðskiptakrafna
Applicon BPO (Business Partner Overview) er yfirlitsmynd sem einfaldar alla vinnu og umsýslu með SAP lánakerfið (CML) og SAP viðskiptamannakerfið (FI/AR).
Aðgengi að upplýsingum og flýthnappar í algengustu aðgerðir einfalda vinnu notenda í SAP. Varan byggir að öllu leyti á stöðluðu SAP kerfi en notanendavænt viðmótið gerir allar aðgerðir tengdar viðskiptavininum skjótari og einfaldari. Allar aðgerðir eru miðaðar að því að lágmarka vinnu við að nálgast og breyta upplýsingum tengdum viðskiptavininum. Auk þess býður BPO upp á gjaldkerakerfi þar sem grunnvirknin er að taka á móti greiðslu og útjafna um leið á viðskiptamannreikning.
Virknin er að fullu samþætt við SAP FI og býður upp á mikla möguleika til einföldunar á daglegum verkum framlínufólks. Hvort sem um er að ræða leiðréttingafærslur á smærri fjárhæðum eða birtingu dráttavöxta úr kröfukerfi.
Ávinningur:
- Allar upplýsingar um viðskiptavin á einum skjá.
- Aukin skilvirkni með einfaldara aðgengi.
- Notendavænt og aðgengilegt viðmót.
- Tenging milli framlínu og bakvinnslu.
Virkni:
- Einföld sýn á skuldastöðu viðskiptaaðila.
- Gerir afgreiðslu viðskiptavina einfaldari og skilvirkari.
- Móttaka á greiðslu með peningum og kortum.
- Leiðréttingabókanir t.d. niðurfelling áfallinna vaxta.
- Tenging við kröfukerfi Applion.
- Aðgerðarhnappur sem býður upp á séraðlaganir t.d. útprentanir og sérforrit.



