Applicon mannauðslausnir styðja við alla ferla mannauðsstjórnunar. Lausnirnar eru aðlagaðar eða sérsmíðaðar fyrir íslenskar aðstæður.
- Applicon Mannauður uppfyllir allar þarfir starfsmannaþjónustu fyrirtækja. Þar má á auðveldan hátt halda utan um grunnupplýsingar um starfsmenn, námskeið og námskeiðsþörf í fyrirtækinu, starfsþróun, skipulagsheild fyrirtækisins og viðveru/fjarveru starfsmanna.
- Applicon Mötuneytislausn einfaldar skráningar starfsmanna í mötuneyti. Lausnin gefur mötuneytum möguleika á að skrá matseðla á þægilegan hátt og birta þá á innrivef fyrirtækis.
- Applicon Starfsmannavefur gerir starfsmönnum kleift að viðhalda persónuupplýsingum sínum á einfaldan hátt, auk þess að auðvelda aðgengi starfsmanna að ýmsum upplýsingum er varða starf þeirra.
- Applicon Umsóknavefur býður notenda upp á að viðhalda upplýsingum um umsækjanda á auðveldan hátt, breytt þeim upplýsingum sem þegar eru komnar inn og/eða bætt við nýjum upplýsingum.