Sem hluti af aðlögðun SAP fjárhagskerfisins að íslenskum aðstæðum hefur Applicon þróað sérlausnir, sniðnar að þörfum íslenskra fyrirtækja. Lausnirnar eru einfaldar í notkun og að fullu samhæfðar við staðlaða SAP fjárhagsferla.
- Applicon Bankatengingar tryggja fyrirtækjum öruggari samskipti við fjármálastofnanir og sveigjanlegt viðmót.
- Applicon Kröfukerfi heldur utan um innheimtukröfur fyrirtækja og samskipti við fjármálastofnanir.
- Applicon Tollakerfi gerir fyrirtækjum kleift að útbúa tollaskýrslur með nauðsynlegum upplýsingum úr öðrum kerfishlutum SAP.
- Applicon BPO er yfirlitsmynd sem einfaldar alla vinnu og umsýslu með SAP lánakerfið (CML) og SAP viðskiptamannakerfið (FI/AR).
