Applicon SSIS Spider
Applicon SSIS Spider hentar fyrir samþættingarlausnir sem krefjast reglulegra gagnaflutninga milli kerfa/gagnagrunna samkvæmt fyrirframskilgreindri áætlun.

  • Viðbótarlausn við SSIS frá Microsoft
  • Hraðar uppsetningu og þróun á SSIS lausnum
  • Viðbótar tengimöguleikar við ytri kerfi
  • Auðveldari rekstur og betri yfirsýn

SSIS Spider er kerfisgrunnur sem Applicon notar við þróun á SQL Server Integration Services (SSIS) samþættingarlausnum. Spiderinn er notaður af þróunaraðilum til að hraða uppsetningu og þróun SSIS lausna, sem og að auðvelda stillingar á umhverfum. Auk þess fylgja Spidernum tenglar fyrir hin ýmsu kerfi, til viðbótar við þá tengla sem SSIS býður upp á.

Einn af stærstu kostum þess að útfæra SSIS lausnir með Spidernum er að loka afurðin verður mun auðveldari í rekstri en án hans. Spiderinn krefur þróunaraðila til að skilgreina og tengja saman þá pakka sem saman mynda eitt heildstætt ferli, sem gefur rekstraraðilum mun betri yfirsýn en annars. Loggun er samræmd milli allra pakka og með Spidernum fylgja staðlaðar Spider skýrslur í SQL Server Reporting Services (SSRS) sem veitir rekstraraðilum skjótan aðgang að góðri yfirsýn sem auðveldar villuleit og snör viðbrögð.

SSIS Spider er viðbót við SSIS vöruna frá Microsoft, þróaður til að bæta upp það sem reynsla Applicon hefur sýnt að mætti bæta í SSIS, og býður upp á tæki og tól til að hraða þróun og auðvelda rekstur SSIS samþættingarlausna.