Applicon Myntkörfulausn
Applicon Myntkörfulausn er viðbót við SAP lánakerfið (CML), sem býður upp á að tengja saman lán í ólíkum myntum í eina myntkörfu. Myntkarfan samanstendur af yfirláni/rammasamningi sem er í íslenskri krónu og undirláni/lánum  sem geta hver um sig verið í mismunandi gjaldmiðlum og með mismunandi vexti.

Stofnun lána í ýmsum gjaldmiðlum hefur verið einfölduð með sérstakri viðbót þar sem notandinn þarf einfaldlega að skrá hlutfall hvers gjaldmiðils áður en lánið er stofnað. Enn fremur má á einfaldan hátt setja inn skilyrðisbundin gjöld sem hægt er tengja lánasamningi, eins og tryggingargjöld og stimpilgjöld.

Helsu eiginleikar

  • Stofnun myntkörfu (yfir- og undirlán) í einni aðgerð.
  • Útborgun myntkörfu í einni aðgerð.
  • Skoðun lykilupplýsinga myntkörfu á einum stað.
  • Innáborganir fyrir myntkörfuna í heild sinni í einni aðgerð.