Applicon hefur þróað eiginleika sem lúta að skýrsluskilum úr SAP.
Applicon VSK skýrsla
Virðisaukaskattur í SAP bókast sem ein færsla per skattakóda í hverju fylgiskjali en ekki sundurliðaður fyrir hverja línu í fylgiskjalinu. Með Applicon VSK skýrslunni er verið að reikna út virðisaukaskatt á hverja línu í fylgiskjali.
- VSK reiknaður út á hverja línu í fylgiskjali.
- Útreikningur borinn saman við bókaðan VSK per skattakóda.
- Samantektir eftir ýmsum eigindum hverrar færslu, s.s. bókhaldslykli, RSK lykli og VSK tegund.
- Fylgiskjöl sjáanleg í skýrslunni og hægt er að rekja sig niður í einstakar færslur og skoða nánar.
- Hægt að keyra upp í lista þar sem notandinn getur breytt útliti eftir þörfum.
- Rekjanleiki er góður, merkingar í skýrslu sem sýna uppruna færslna.
Applicon Aldursgreining
Aldursgreiningarskýrsla Applicon auðveldar viðskiptavinum að fylgjast með útistandandi kröfum/skuldum, meta heildarstöðu og einstök mál þegar við á.
- Kröfur eru aldursgreindar niður á ákveðin tímabil s.s. 30, 60, 90 eða 120 daga.
- Hægt er keyra skýrsluna á hvern viðskiptamann fyrir sig eða allar útistandandi kröfur fyrirtækis.
- Mögulegt að skoða aldursgreiningu krafna aftur í tímann og sögu viðskiptaaðila við fyrirtæki.
- Unnt er að sjá heildarstöðu viðskiptaaðila innan samsteypu fyrirtækis ef svo ber undir.
- Rekjanleiki er góður og einfalt er að rekja sig ofan í upprunaskjöl s.s. sölureikninga.