SAP All-in-One færir litlum og meðalstórum fyrirtækjum skalanlegar lausnir á viðráðanlegu verði.
Með viðurkenndum SAP All-in-One lausnum frá Applicon fá lítil og meðalstór fyrirtæki tilbúnar heildarlausnir í SAP. Búið er að forstilla SAP kerfið miðað við „Best Practice“ sem byggir á reynslu í viðkomandi atvinnugrein til margra ára.
Ekki þarf að púsla saman lausnum sem erfitt er að samþætta eða sérsníða ósveigjanleg forrit. Fljótlegt er að auka sjálfvirkni viðskiptaferla með þessum tilbúnu lausnum sem sniðnar eru að rekstrarþörfum hvers og eins fyrirtækis.
Með þessu sparast innleiðingartími og áhætta af því að kostnaður við innleiðingu fari fram úr áætlun er mun minni.
Nánari upplýsingar um SAP All in One má finna á heimasíðu SAP.