Hvernig geta fyrirtæki einfaldað úrvinnslu starfsumsókna og borið umsækjendur saman á auðveldan hátt?

Applicon Umsóknarvefur
Með Applicon Umsóknarvef berast allar starfsumsóknir sem sendar eru inn af heimasíðu fyrirtækis beint inn í ráðningarhluta Applicon Mannauðs.  Í ráðningarhlutanum geta ráðningarfulltrúar unnið með umsóknirnar og borið umsækjendur saman eftir ýmsum skilyrðum.  Þegar ákveðið hefur verið hvern skal ráða er einfalt að flytja viðkomandi yfir í starfsmannahluta kerfisins, án þess að slá þurfi upplýsingarnar inn aftur, og senda höfnunarbréf til þeirra sem ekki voru ráðnir.

Umsóknarvefurinn er til á íslensku, ensku og dönsku.

Helstu eiginleikar:

  • Umsóknir sem fylltar eru út á heimasíðu fyrirtækis vistast niður í ráðningarhluta Applicon Mannauðs.
  • Umsækjendur geta skráð sig aftur inn á vefinn, sótt um fleiri lausar stöður og/eða viðhaldið þeim upplýsingum sem þeir hafa þegar sent inn.
  • Einfaldur samanburður á umsækjendum í umsækjendaskýrslu.
  • Auðvelt að senda viðhengi, s.s. starfsferilskrá og prófskírteini til umsagnar á aðra aðila eins og yfirmenn.
  • Flutningur á umsækjanda sem ráðinn er yfir í starfsmannahluta kerfisins.
  • Útsending höfnunarbréfa.

Helsti ávinningur:

  • Ekki þarf að handskrá upplýsingar þar sem þær upplýsingar sem umsækjandi slær inn á vefnum skrást beint í ráðningarhlutann og flytjast þaðan yfir í starfsmannahlutann ef umsækjandi er ráðinn.
  • Samanburður umsækjenda er einfaldur með aðgengilegum skýrslum.
  • Einfalt ráðningar- og höfnunarferli.
  • Gott utanumhald er um sögu gagna.
  • Öflugar aðgangsstýringar gera það að verkum að hægt er að hafa mismunandi aðgangsheimildir fyrir yfirmenn, ráðningarfulltrúa og aðra.