Hvernig geta fyrirtæki einfaldað tollskýrslugerð og flýtt fyrir afgreiðslu tollskýrslna með rafrænum samskiptum við tollstjóra ?
Applicon Tollakerfi
Applicon Tollakerfi er sérsniðið að þörfum íslenskra fyrirtækja sem stunda inn- og útflutning og þurfa að standa skil á skýrslum og gjöldum til hins opinbera. Tollakerfið er sjálfstæð lausn sem gefur möguleika á tengingum við aðra kerfishluta SAP og sparar því notendum endurtekinn innslátt sömu gagna ásamt því að rekjanleiki gagna í kerfinu er til staðar. Rafræn sending og móttaka inn- og útflutningsskýrslna frá tollstjóra ásamt sjálfvirkum útreikningi á tollum og gjöldum í kerfinu minnkar vinnu við tollskýrslugerð og styttir innkaupa- eða söluferli vörunnar. Tollakerfi Applicon minnkar líkurnar á villum við gerð tollskýrslna þar sem villuleit er innbyggð í kerfið og möguleiki er á útgáfustýringu tollskýslna sem tryggir rekjanleika á þeim gögnum sem send hafa verið til tollstjóra. Tollakerfi Applicon er vottað af Tollstjóraembættinu og inniheldur upplýsingar eins og tollskrá og gjaldalykla ásamt nauðsynlegar skýrslur og útprentanir til að fullnægja öllum þörfum inn- og útflutningsfyrirtækja.
Kostir Tollakerfis Applicon
- Tenging við aðra kerfishluta SAP sem minnkar innslátt gagna.
- Rafræn sending og móttaka ganga frá tollstjóra með EDI skeytum.
- Sjálfvirkir útreikningar á tollum og gjöldum.
- Auðveldur innlestur uppfærðra tollskráa.
- Villuhætta við innslátt er í lágmarki með notkun staðlaðra upplýsinga úr töflum.
- Villuleit í tollskýrslum.
- Útgáfustýring á tollskýrslum og tollskrám.
- Sérsniðnar skýrslur og útprentanir.
