Einfaldari leið til innheimtu
Í Applicon Kröfukerfi er hægt að sjá allar kröfur sem stofnaðar hafa verið og stöðu þeirra í bankanum, þ.e. hvort þær eru greiddar, ógreiddar, greiddar að hluta, niðurfelldar, í milliinnheimtu eða í lögfræðiinnheimtu.
Applicon Kröfukerfi heldur utan um alla vinnslu varðandi samskipti við bankana og býður einnig upp á samskipti við þriðja aðila, t.d. innheimtufyrirtæki og prentþjónustur. Lausnin er byggð á SAP viðskiptahugbúnaði.
Helstu eiginleikar
- Stofna kröfur
- Breyta kröfum
- Fella kröfur
- Innlestur greiðslna
- Innlestur áfallinna liða
Aðrar aðgerðir
- Dagleg afstemming: Kröfur í Applicon Kröfukerfi eru bornar saman við kröfur í bókhaldskerfi og banka.
- Prentun: Kerfið býður upp á staðlaða prentun á greiðsluseðlum en auðvelt er að aðlaga hana að hverri uppsetningu fyrir sig.Hægt er að taka út greiðsuseðlana í XML formi.
- Áfallnir liðir: Kerfið sækir upplýsingar í banka um áfallna liði, s.s. dráttarvexti, vanskilakostnað, tilkynningargjald o.fl.