Applicon Bankatengingar tryggja fyrirtækjum öruggari samskipti við fjármálastofnanir og sveigjanlegt viðmót.
Er bankaöryggi hjá þínu fyrirtæki?
Tengingar milli SAP og bankanna byggja annars vegar á sambandi BC (Business Connector) hjá viðskiptavini og B2B þjónustu bankans hins vegar. SAP hefur samband við BC sem hefur síðan samband við vefþjón bankans.
Lausnin byggir á XML sem er staðlaður sendingarmáti yfir Internetið. Með Applicon Bankatengingum er mögulegt að hafa samskipti við fleiri en eina fjármálastofnun og auðvelt að færa viðskipti milli banka.
Auk hefðbundinna aðgangsstýringa í SAP fylgja auknar aðgangsstýringar fyrir bankatengingarnar. Þar er stýrt hvaða starfsmenn hafa aðgang að einstökum aðgerðum bankatenginganna.
Helstu eiginleikar
- Innlestur gengis
- Almennt gengi
- Krossgengi
- Greiðslukerfi (útgreiðslur)
- Innlendar greiðslur
- Erlendar greiðslur
- OCR innlestur
- Sjálfvirk bókun og útjöfnun
- Sjálfvirk afstemming á bankareikningi