Applicon launalausnir eru íslensk smíði, forrituð af starfsmönnum Applicon ehf.
- Applicon Laun er sjálfstæð hugbúnaðarlausn sem er skrifuð í SAP. Þessi lausn vinnur með Applicon mannauðslausninni og er fullkomlega samþætt öðrum kerfishlutum í SAP. Lausnin uppfyllir allar kröfur um íslenskan launareikning. Applicon Laun bjóða einnig upp á sérlausn fyrir sveitarfélög og sjávarútveg.
- Applicon Laun í erlendri mynt er viðbót við Applicon Laun, sem gerir kleift að greiða laun í erlendri mynt, hvort heldur er fyrir einstaka starfsmenn eða alla starfsmenn. Hægt er að bóka þessi laun hvort heldur sem er í íslenskum krónum eða erlendri mynt.
- Í Applicon Launaáætlun er hægt að útbúa launaáætlun niður á starfsmann. Launaáætlun er reiknuð ásamt öllum launatengdum gjöldum og kemur með fullbúinni launabókun. Applicon Launaáætlun er forrituð í SAP og vinnur með Applicon Launum.
- Applicon Listasmiðja er skýrslugerðartól sem vinnur á launa- og starfsmannagögnum.
- Applicon Veiðiferðakerfið er hluti af sjávarútvegslausn Applicon. Það sendir á einfaldan hátt laun reiknuð út frá aflahlut beint inn í Applicon Laun.
