Applicon Vísitölulausn
Applicon hefur þróað staðlaða viðbót við SAP lánakerfið (CML) sem gerir notendum kleift að velja viðeigandi verðvísitölu, eins og vísitölu neysluverðs, lánskjaravísitölu eða greiðslujöfnunarvísitölu. Þegar samningur er stofnaður er hægt að tilgreina grunndagsetningu fyrir verðbólgustig. Lausnin nær yfir alla tengda útreikninga og bókanir, eins og áunna hækkun vísitölu og aðskiljanlegar bókanir í fjárhag.
