Hvernig geta fyrirtæki á einfaldan hátt haldið utan um skráningar í mötuneyti?
Applicon Mötuneytislausn
Applicon Mötuneytislausn gefur mötuneytum möguleika á að skrá matseðla á þægilegan hátt og birta þá á innri vef fyrirtækis eða Applicon Starfsmannavef, ef hann er notaður. Hægt er að skrá úttektir starfsmanna eða skanna vörur inn. Starfsmenn geta sjálfir skráð úttektir sínar á þægilega snertiskjái. Góðar skýrslur nást út úr kerfinu fyrir mötuneytin og bein tenging er við Applicon Laun þannig að úttekt starfsmanna dregst frá launum.
Helstu eiginleikar:
- Skráning vöruúrvals, ef við á
- Skráning matseðla og birting þeirra á innraneti eða Applicon Starfsmannavef
- Skráning starfsmanna í mötuneyti
- Skráning í Applicon Laun
- Skýrslur
Helsti ávinningur:
- Einfaldara utanumhald um skráningar starfsmanna í mötuneyti
- Tenging við Applicon Laun þannig að úttekt dregst frá launum
- Tenging við vörumaster svo birgðastaða uppfærist
- Möguleiki á að skrifa út reikning fyrir útttekt
