12.04.2006

Áhersla Applicon á bankalausnir
Applicon hefur undanfarin ár lagt ríka áherslu á að hanna upplýsingatæknilausnir fyrir banka og fjármálastofnanir og markvisst byggt upp þekkingu og sambönd á því sviði. Ingimar G. Bjarnason, hópstjóri bankalausna Applicon, segir að fyrirtækið hafi á að skipa breiðum hópi ráðgjafa með reynslu af alþjóðlegum verkefnum. ,,Þá höfum við einnig skapað okkur þau tengsl sem nauðsynleg eru til að þjónusta viðskiptavini okkar sem allra best. Applicon er því að ávinna sér stöðu á markaðinum sem traust ráðgjafarfyrirtæki í bankalausnum og samningurinn við Íslandsbanka er enn frekari staðfesting á því starfi sem við höfum unnið.”

Applicon á Norðurlöndum
Applicon er eitt stærsta óháða SAP ráðgjafarfyrirtækið á Norðurlöndum með um 120 starfsmenn í þremur starfsstöðvum á Íslandi og í Danmörku. Fyrirtækið leggur áherslu á vandaða ráðgjöf á sviði SAP og Microsoft hugbúnaðarlausna. Einnig býður Applicon upp á lausnir sem skila viðskiptavinum ávinningi hratt og örugglega.

Nánari upplýsingar veitir Kristján Jóhannsson, framkvæmdastjóri Applicon ehf., í síma 563 6100 eða í netfanginu kjo@Applicon.is og Gisli Heimisson, framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka í síma 440 4000 eða í netfanginu gisli.heimisson@isb.is