29.08.2012
Applicon hefur hlotið PCoE (Partner Center of Expertise) gæðavottun fyrir vöru- og þjónustuframboð SAP viðskiptahugbúnað.
Vottunin gildir fyrir allar skrifstofur Applicon á Íslandi, í Danmörku og í Svíþjóð. PCoE vottun SAP gildir fyrir þjónustuborð, þjónustuferla og ráðgjafa Applicon og hefur Applicon því uppfyllt gæðastaðla fyrir sérhæfða þjónustu fyrir SAP Business All-in-One og SAP BusinessObjects lausnir.
Til þess að sölu- og þjónustuaðilar SAP geti þjónustað viðskiptavini sína þurfa þeir að ganga í gegnum PCoE vottunarferli, en slík vottun gildir í 2 ár. „PCoE vottun frá SAP er mjög mikilvæg fyrir Applicon sem sölu- og þjónustuaðila SAP á Norðurlöndum. Viðskiptavinir Applicon geta nú verið fullvissir um að fá hágæða þjónustu á þeim SAP lausnum sem Applicon þjónustar," segir Sveinn K. Ögmundsson, þjónustustjóri Applicon.
Applicon, sem er dótturfélag Nýherja, er norrænt ráðgjafar- og þjónustufyrirtæki á sviði viðskiptahugbúnaðar. Hjá Applicon starfa um 150 manns á Íslandi, Danmörku og í Svíþjóð.

