27.06.2011

SAPPHIRE og SAP TechEd eru tvær stærstu ráðstefnur SAP sem haldnar eru ár hvert í Evrópu og Bandaríkjunum.  Ráðstefnurnar verða nú keyrðar samtímis fyrir Evrópusvæðið í Madrid á Spáni dagana 8-11 nóvember.

Þetta er kjörið tækifæri fyrir stjórnendur, ráðgjafa og notendur að sameinast á þessum tveimur ráðstefnum og kynna sér það sem SAP hefur upp á að bjóða. 
 
SAPPHIRE NOW + SAP TechEd Madrid.

Nánari upplýsingar um SAPPHIRE má nálgast hér.

Nánari upplýsingar um SAP TechEd má nálgast hér.

Starfsfólk Applicon veitir einnig upplýsingar varðandi ráðstefnuna og getur aðstoðað við bókanir bæði á ráðstefnu og hótel.