22.06.2011
Hugbúnaðarfélagið Applicon, sem er hluti af Nýherjasamstæðunni, hefur lokið innleiðingu á PeTra hugbúnaðarlausn hjá Nordea, einum stærsta banka Norðurlanda.
Um er að ræða lausn sem tryggir öruggt verklag og eftirlit með eigin verðbréfaviðskiptum bankastarfsmanna og starfsmanna opinberra stofnanna.
Applicon í Svíþjóð innleiddi lausnina fyrir Nordea, en hjá Applicon þar í landi starfa hátt í 60 manns. Um 170 manns starfa hjá Applicon félögum Nýherja í Danmörku, Íslandi og í Svíþjóð.
Notendur PeTra er yfir 10 þúsundir í fyrirtækjum í Svíþjóð og Danmörku. Meðal annarra fyrirtækja sem hafa fest kaup á búnaðinum eru SEB bankinn, Öhman og Carnegie bankinn. Hafin er markaðssetning á lausninni hér á landi.
Nánari upplýsingar um PeTra
á íslensku
á ensku
á sænsku

