21.05.2011
Hið árlega Applicon Open golfmót verður haldið föstudaginn 27.maí frá kl. 14:50 til 23:00. Mótið verður haldið á Hlíðarvelli í Mosfellsbæ eins og undanfarin ár.
Mynduð verða 4 manna lið og leika þau samkvæmt “Texas Scramble” fyrirkomulagi þannig að besta högg er valið og síðan slá kylfingar frá þeim punkti og svo koll af kolli þar til bolti er í holu!
Að leik loknum verður boðið upp á veitingar í golfskálanum og verðlaun afhent en auk þess verða verðlaun dregin úr skorkortum viðstaddra
Það hefur verið mjög góð þátttaka í þessu móti hjá okkur á ári hverju og skemmtileg stund þar sem starfsmenn Applicon og viðskiptavinir ná að kynnast og hittast á öðrum vettvangi.

