29.10.2010
Fimmtudaginn 4. nóvember næstkomandi munu ráðgjafar Applicon kynna nýjustu útgáfu Applicon Listasmiðjunnar. Laun starfsfólks eru stór kostnaðarliður hjá flestum fyrirtækjum og á tímum kostnaðaraðhalds eru stjórnendur því með sífellt auknar kröfur um bættar upplýsingar á þessu sviði.
Listasmiðjan er lausn til að útbúa einfalda lista og skýrslur á launa og starfsmannagögn.
Dagskrá:
08:45 – Léttur morgunverður
09:00 – Applicon Listasmiðja og launaáætlun
09:20 – Demo Listasmiðja og launaáætlun
09:50 – Spurningar og svör
10:15 – Fundi slitið
Í nýjustu útgáfu Listasmiðjunnar er auk lista- og skýrslugerðar einfalt ferli til samþykktar launa fyrir launaútborgun. Nýtt viðmót launaáætlanagerðar fyrir stjórnendur og þá sem koma að launaáætlanagerð verður einnig kynnt til sögunnar. Þessari nýju lausn fylgja m.a. skýrslur til samanburðar á raun launakostnaði vs áætlun auk mjög notendavæns mælaborðs sem eykur enn yfirsýn yfir launa og starfsmannaupplýsingar.
Boðið verður upp á léttar veitingar í upphafi fundar.
Vinsamlegast sendið tilkynningu um þátttöku í tölvupósti á netfangið: applicon@applicon.is þar sem fram kemur:
• Nafn þátttakenda
• Fyrirtæki
Skráningu lýkur þriðjudaginn 2. nóvember kl. 13:00
