16.08.2010
Lausn sem hefur verið þróuð hjá Applicon Solutions í Danmörku hefur á skömmum tíma verið seld til nokkurra velþekktra stórfyrirtækja í Bandaríkjunum, Bretlandi og Danmörku. Um er að ræða aðgangsstýringarkerfi fyrir SAP viðskiptahugbúnað sem hefur verið selt til Mercedes-Benz International, General Electric Intelligent Solutions og Warner Music Group í Bandaríkjunum. Þá hefur Xerox í Bretlandi og Danfoss og Louis Poulsen Lighting í Danmörku einnig valið APM lausnina.
APM lausnin (Applicon Authorization Process Manager) er notuð notuð til þess að efla og samræma aðgangsstýringar í SAP.
Applicon félögin eru fjögur talsins. Þau eru ráðgjafar- og þjónustufyrirtæki á sviði viðskiptahugbúnaðar, með áherslu á SAP, Calypso og Microsoft lausnir. Tvö félög eru starfrækt í Danmörku, eitt í Svíþjóð og eitt á Íslandi. Þá er rekin söluskrifstofa í Bretlandi. Stöðugildi voru 183 á árinu 2009.
