08.05.2010
Hið geysivinsæla árlega Applicon Open golfmót verður haldið föstudaginn 11. júní n.k. Mótið fer að þessu sinni fram á Hlíðarvelli í Mosfellsbæ eins og undanfarin tvö ár. Mótið verður með svipuðu sniði og verið hefur, þ.e. spilað verður í 4 manna liðum, 14 holur og svo komið saman í golfskála og grillað og haft gaman. Það hefur verið gríðarlega góð þátttaka í þessu móti hjá okkur á ári hverju og skemmtileg stund þar sem starfsmenn Applicon og viðskiptavinir ná að kynnast og hittast á öðrum vettvangi.
Applicon Open er orðinn fastur þáttur í okkar starfi og mikilvægur þáttur í samskiptum okkar við viðskiptavini. Að venju er spáð veðurblíðu þann 11. júní og vonandi sjá margir sér fært að mæta.

