07.05.2010
Íslandsbanki festi á dögunum kaup á Starfsmannavef frá Applicon og mun á næstu mánuðum innleiða lausnina í rekstri félagsins. Applicon Starfsmannavefur er notendavæn veflausn sem byggir á Applicon Mannauði og Applicon Launum. Vefurinn getur staðið einn og sér eða verið hluti af innraneti viðkomandi fyrirtækis.
Með innleiðingu á Applicon Starfsmannavef eykst til muna aðgengi starfsmanna að eigin upplýsingum og grunnupplýsingum um aðra starfsmenn. Með notkun lausnarinnar dregur einnig úr álagi á starfsfólki starfsmanna- og launadeilda þar sem minni tími fer í að veita upplýsingar sem starfsmenn geta nú nálgast sjálfir og meiri tími skapast til virðisaukandi verka. Íslandsbanki hefur um árabil nýtt sér mannauðslausnir SAP auk launalausna í sínum rekstri og eru kaup á starfsmannavef liður í að nýta betur þá miklu möguleika sem felast mannauðslausnum Applicon.

