15.03.2010

Fimmtudaginn 18. mars næstkomandi heldur Applicon morgunverðarfund í húsakynnum sínum Borgartúni 37.

SAP hefur nýlega sett á markað nýtt notendaviðmót á SAP viðskiptahugbúnaðinn. Viðmótið einfaldar aðgerðir starfsmanna í daglegri vinnu sinni í SAP auk þess sem það býður upp á mikla möguleika í birtingu upplýsinga úr hinum ýmsu kerfum eins og t.d. skýrslur, innra net, leit o.fl. allt á einum stað.

Markhópur er  forstöðumenn upplýsingatæknisviðs, SAP sérfræðingar og lykilnotendur (super users).

Dagskrá:
08:50 – Innritun
09:00 – Opnun
09:10 – SAP Netweaver Business Client
09:30 – Demo
09:50 – Spurningar og svör
10:00 – Fundi slitið

Boðið verður upp á léttar veitingar í upphafi fundar.

Vinsamlegast sendið tilkynningu um þátttöku í tölvupósti sem fyrst á netfangið: applicon@applicon.is, þar sem fram kemur:

  • Nafn þátttakenda
  • Fyrirtæki

Skráningu lýkur þriðjudaginn 16. mars kl. 12:00