05.03.2010

Fimmtudaginn 11. mars næstkomandi heldur Applicon morgunverðarfund í húsakynnum sínum Borgartúni 37.

Í harðnandi efnahagsumhverfi verður það stöðugt mikilvægara að hafa púlsinn á rekstrinum. Stjórnendur kalla eftir skýrari upplýsingum til ákvörðunartöku sem skiptir sköpum.

SAP Business Objects er eitt öflugasta tól sinnar tegundar til að gera gögn í undirliggjandi kerfum að sýnilegum upplýsingum. Upplýsingum sem gefa skýra mynd af stöðu rekstrarins á hverjum tíma á myndrænan hátt í formi línurita, kökurita, mæla eða skýrslna.

Á fundinum verður farið yfir pakkalausnina SAP Business Objects EDGE sem inniheldur öflug tól frá  Business Objects. Sýndar verða skýrslur í Xcelsius og Crystal Reports með áherslu á tengingu við SAP ERP og SAP BW.


Dagskrá:
08:45 – Innritun
09:00 – Opnun
09:10 – SAP Business Objects Edge
09:40 – Demo: Xcelsius og Crystal Reports
10:15 – Spurningar og svör

Boðið verður upp á léttar veitingar í upphafi fundar.

Vinsamlegast sendið tilkynningu um þátttöku í tölvupósti sem fyrst á netfangið: applicon@applicon.is, þar sem fram kemur:

  • Nafn þátttakenda
  • Fyrirtæki

 Skráningu lýkur þriðjudaginn 09. mars kl. 12:00