24.02.2010

Fimmtudaginn 4. mars næstkomandi heldur Applicon morgunverðarfund í húsakynnum sínum Borgartúni 37.

Skilvirkni í innheimtuferlum fyrirtækja hefur sjaldan verið eins mikilvæg og þessi misserin.  Á fundinum verður farið yfir hvernig hægt er að nýta SAP kerfið til fá aukna yfirsýn yfir innheimtuferla fyrirtækisins og ná þar betri árangri.  Hvernig nýta má skuldastýringu, bæta eftirlit með stöðu viðskiptakrafna, ná fram markvissari vanskilainnheimtu og bæta úrlausn kvartana/deilumála.

Farið verður yfir þær lausnir sem hægt er að nýta sér í SAP ERP grunnkerfi og einnig farið lauslega yfir sérlausnina SAP-FSCM (Financial Supply Chain Management) sem býður upp á mikla möguleika á öllum stigum sölu- og innheimtuferilsins.

Dagskrá:
08:45 – Innritun
09:00 – Opnun
09:10 – Skilvirkar innheimtur í SAP
10:15 – Spurningar og svör
10:30 – Fundi slitið


Meðal þess efnis sem farið verður í er:
  • Skuldastýring í SAP
  • Tengingar við CreditInfo
  • Eftirlit með stöðu viðskiptakrafna
  • Vanskilainnheimta 
Boðið verður upp á léttar veitingar í upphafi fundar.

Vinsamlegast sendið tilkynningu um þátttöku í tölvupósti sem fyrst á netfangið: applicon@applicon.is, þar sem fram kemur:
  • Nafn þátttakenda
  • Fyrirtæki

Skráningu lýkur Þriðjudaginn 2. mars kl. 12:00