20.03.2010
Í maí næstkomandi verður hin árlega SAPPHIRE ráðstefna haldin. Þessu sinni verður ráðstefnan haldin í Frankfurt í Þýskalandi dagana 17-19 maí.
SAPPHIRE ráðstefnan er stærsti viðburður SAP ár hvert. Á henni kynnir SAP fyrirtækið komandi tíma í SAP heiminum auk þess sem fjöldinn allur af söluaðilum kynna lausnir og nýjungar. Ráðstefnan er viðburður sem enginn SAP viðskiptavinur ætti að láta framhjá sér fara, en þar sameinast söluaðilar, sérfræðingar og viðskiptavinir SAP og kynna sér strauma og stefnur í SAP heiminum.
Starfsfólk Applicon veitir áhugasömum upplýsingar um viðburðinn og mun kynna ráðstefnuna nánar þegar nær dregur.
Á vefsíðu ráðstefnunnar má finna upplýsingar um viðburðinn sem að venju verður hin glæsilegasti.

