20.11.2009
Skeljungur sem notað hefur Mannauðs- og Launalausnir Applicon til margra ára undirritaði nýverið samninga við Applicon um fjölda viðbótarlausna í kerfið. Skeljungur mun á næstunni innleiða hjá sér nýjustu útgáfu af HR-Xpress SAP lausninni auk þess sem teknar verða í notkun fjórar nýjar lausnir frá Applicon. Um er að ræða lausnir fyrir starfsmannavef, vef fyrir umsóknarferli, listasmiðju sem er greiningar- og skýrslugerðartól fyrir stjórnendur. Síðast en ekki síst innleiðir Skeljungur mötuneytislausn í SAP sem heldur sjálfvirkt utan um skráningar starfsmanna í mat, og er það beintengt við launakerfið.