10.11.2009
Hollenska ING banka- og tryggingasamstæðan hefur valið íslenska hugbúnaðarfélagið Applicon til þess að vinna að innleiðingu á SAP bankahugbúnaði fyrir útlán bankans. ING er í hópi 25 stærstu banka Evrópu þegar miðað er við markaðsvirði.
Hjá ING starfa um 111 þúsund starfsmenn um heim allan; um 72 þúsund vinna við bankastarfsemi en um 39 þúsund í tryggingastarfsemi, samkvæmt heimasíðu ING. Applicon, sem hefur áralanga reynslu í verkefnum fyrir fjármálafyrirtæki á Norðurlöndum, hóf þátttöku í verkefnum fyrir ING seint á síðasta ári.
„Verkefnum fyrir ING hefur fjölgað á undanförnum mánuðum þar sem Applicon, í samstarfi við IBM, er að vinna að innleiðingu á bankahugbúnaði fyrir útlán,“ segir Hinrik Hansen framkvæmdastjóri erlendrar starfsemi hjá Applicon. Hann segir að Applicon hafi aflað sér víðtækrar reynslu í verkefnum fyrir banka og fjármálafyrirtæki, einkum á Norðurlöndunum, við uppsetningu og þjónustu við kjarnakerfi þeirra. Meðal viðskiptavina má nefna Nordea, Swedbank og Handelsbanken.
"Applicon hefur lagt áherslu á að fjölga verkefnum fyrir banka og fjármálafyrirtæki í Evrópu og því kemur áralöng reynsla félagsins að góðum notum í slíkum verkefnum sem eru framundan."
Applion er norrænt ráðgjafar- og þjónustufyrirtæki í viðskiptahugbúnaði. Applicon er með starfsemi á Íslandi, Danmörku og Svíþjóð.
