29.07.2009
Hið árlega Applicon Open var haldið á golfvelli Kjalar í Mosfellsbæ fyrir skömmu þar sem mörgum viðskiptavinum Applicon var boðið að taka þátt í golfmóti með Texas Scramble fyrirkomulagi.
Golfmótið hefur notið sívaxandi vinsælda hjá viðskiptavinum Applicon, ekki síst vegna þess að fyrirkomulagið gerir óvönum mögulegt að spila með reyndari kylfingum og njóta leiðsagnar þeirra um leið.
Vinningshafar mótsins voru Guðbjörg Árnadóttir, Applicon, Sindri Önundarson, Applicon, Ingimundur Árnason, Norðuráli og Haukur Jónsson frá Símanum.
Applicon ehf. veitir ráðgjöf og þjónustu í viðskiptahugbúnaði. Fyrirtækið er hluti af Nýherjasamstæðunni.

