26.06.2009
Applicon í Svíþjóð, systurfélag Applicon ehf., hefur gert samning við tvo af stærstu fjármálafyrirtækjum Svíþjóðar, Swedbank og Nordea bankann, um innleiðingu á Calypso, sem er hugbúnaður fyrir viðskipti á verðbréfamörkuðum. Samningurinn við Nordea og Swedbank felur í sér víðtæka innleiðingu á ákveðnum fjármálaafurðum fyrirtækjanna og meðal annars er gert ráð fyrir að Nordea taki búnaðinn í notkun í nokkrum löndum þar sem fyrirtækið er með starfsemi.
„Mikil endurnýjun á sér stað á hugbúnaðarlausnum á meðal helstu fjármálafyrirtækja Svíþjóðar þar sem meðal annars er litið til Calypso hugbúnaðar og SAP fjármálalausna. Applicon í Svíþjóð býr yfir góðri þekkingu á þessum lausnum, einkum Calypso eftir að félagið festi kaup á Marquardt & Partners í upphafi síðasta árs,“ segir Heimir Fannar Gunnlaugsson sem stýrir alþjóðlegum sölu- og markaðsmálum hjá Applicon.
Hann segir að Applicon hafi ennfremur haldið áfram verkefnum hjá Álandsbanka, sem tók yfir stóran hluta af starfsemi Kaupþings í Svíþjóð. „Við þá tilfærslu fengum við 6 starfsmenn frá Kaupþingi í Svíþjóð til okkar sem núna eru miklvægur hluti af okkar reynslumikla hópi ráðgjafa fyrir fjármálafyrirtæki.“

