25.06.2009
Applicon ehf. hefur allt frá því bankarnir fóru á hliðina hér á landi í október á síðasta ári lagt áherslu á að koma starfsmönnum fyrirtækisins í störf á erlendri grundu. Ingimar G. Bjarnason, framkvæmdastjóri Applicon, segir að unnið hafi verið markvisst að þessu. Nú þegar hafi átta sérfræðingar fyrirtækisins farið til starfa erlendis í mislangan tíma og stefnt sé markvisst að því að koma fleirum út á næstu misserum.
„Við gerðum okkur grein fyrir því hvert stefndi síðastliðið haust og hófumst strax í nóvember handa við að reyna að verða okkur úti um verkefni erlendis,“ segir Ingimar. „Enn sem komið er höfum við einungis náð að tryggja okkur um 5-10% af þeim fyrirspurnum sem okkur berast. Þetta er því enn óplægður akur fyrir okkur. Í sumum tilvikum höfum við ekki haft þekkinguna, en í öðrum hafa keppinautar orðið fyrir valinu eða talið áhættusamt að bjóða í stærri verkefni vegna óvissu með gengisþróun. Sveiflur í gengi krónunnar hafa mikil áhrif á hvort okkur tekst að koma fólki í verkefni út. Það er því lykilatriði að hér skapist jafnvægi í gengismálum á næstunni. Þrátt fyrir þessa annmarka er verulegur áhugi á íslensku starfsfólki í þekkingariðnaði. Við höfum orð á okkur fyrir að vera vel menntuð, með breiða þekkingu á viðfangsefnunum og göngum með réttu hugarfari að þeim verkefnum sem okkur eru falin hverju sinni. Starfsmenn Applicon hafa fengið mjög góða umsögn hjá þessum erlendu viðskiptavinum. Við gerum okkur ágætar vonir um að þessi leið skili okkur fleiri og spennandi verkefnum þegar fram líða stundir. Það má líta á þessa vinnu sem maraþon; árangurinn næst ekki strax heldur þurfum við að vera vakandi yfir þeim tækifærum sem bjóðast og styrkja enn frekar þá reynslu sem við höfum af alþjóðlegum verkefnum. Þannig getum við viðhaldið þekkingu innan fyrirtækisins og verðum í stakk búin til að takast á við ný verkefni þegar þau bjóðast hér á landi síðar.“
Starfsemi í þremur löndum
Applicon er norrænt ráðgjafar- og þjónustufyrirtæki í viðskiptahugbúnaði með áherslu á SAP-, Calypso- og Microsoft-lausnir. Applicon-félögin eru fjögur talsins með starfsemi í þremur löndum, Applicon A/S og Applicon Solutions A/S í Danmörku, þar sem starfa um 80 manns, Applicon í Svíþjóð með um 50 starfsmenn og Applicon ehf. á Íslandi, en fjöldi starfsmanna hér er um 60.
Ingimar segir að verkefnin sem starfsmenn Applicon á Íslandi hafi verið að taka að sér erlendis séu fjölbreytileg. Til að mynda hafi einn starfsmaður starfað við verkefnastjórnun hjá Statoil Hydro í Noregi í um sex mánuði. Þá eru þrír starfsmenn Applicon-samstæðunnar í lykilhlutverki í verkefni hjá ING-bankanum í Hollandi, en Applicon hafi öðlast töluverða þekkingu á bankamarkaði eftir að hafa starfað fyrir íslensku bankana.
„Við erum ánægð með það hvernig tekist hefur til hingað til, en ætlum okkur meira,“ segir Ingimar.

