02.03.2009

Applicon hefur hannað nýja skýrslu í SAP fyrir launakönnun ParX viðskiptaráðgjöf. Skýrslan var hönnuð í samráði við sérfræðinga ParX og sækir öll viðeigandi gögn úr launalausn SAP og setur þau fram tilbúin fyrir skil til ParX.

Fram að þessu hefur gagnasöfnun vegna launakönnunar ParX að jafnaði verið tveggja til þriggja daga vinna hjá launaráðgjöfum fyrirtækja. Með því að nota þessa nýju skýrslu í SAP má því spara mikinn tíma og fyrirhöfn.

Nánari upplýsingar má fá hjá launaráðgjöfum Applicon með því að senda tölvupóst á saplaun@applicon.is eða hringja í símanúmer 563 6170.