24.10.2008

Ingimar G. Bjarnason hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra Applicon ehf. Hann hefur starfað hjá Applicon frá 2006, fyrst hjá Applicon ehf. og svo sem framkvæmdastjóri Applicon Solutions Ltd í Bretlandi. Þar áður starfaði Ingimar hjá hugbúnaðarsviði Nýherja.

Ingimar lauk prófi í véla- og iðnverkfræði frá Háskóla Íslands árið 1996 og síðan MBA prófi frá IESE Viðskiptaháskólanum í Barcelóna 2003.

Kristján Jóhannsson sem gegnt hefur stöðu framkvæmdastjóra Applicon ehf. frá stofnun félagsins og þar áður framkvæmdastjóri hugbúnaðarsviðs Nýherja hf. lætur nú af störfum. Stjórn Applicon ehf. vill færa Kristjáni þakkir fyrir mikil og góð störf við uppbyggingu á félaginu og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni.