29.09.2008
Flexible Real Estate frá SAP
Hugbúnaðarfyrirtækið Applicon hefur kynnt til sögunnar lausn fyrir fasteignafélög til þess að halda utan um leigusamninga og fasteignir. Lausnin, sem nefnist Flexible Real Estate frá SAP, er hægt að keyra sjálfstætt eða tengja við fjárhagskerfi, eins og Navision og Axapta. ”Einnig er kerfið samþætt SAP fjárhagskerfi, en sú lausn skarar fram úr á sínu sviði enda er SAP eitt stærsta fyrirtæki heims í viðskiptahugbúnaði,” segir Guðjón Karl Þórisson sölustjóri Applicon.
Guðjón segir að Real Estate lausnin nái yfir flesta þá þætti sem máli skipta fyrir fasteignafélög. Það taki tillit til þátta eins og utanumhald fasteigna, strúktúr bygginga, stærð, leigurými, sameiginlegs rýmis, teikninga, verðmæti og eiginleika fasteigna. ”Einnig má nefna útreikninga á inn- og útleigu, þ.m.t. vístiölutengingu, verðútreikninga á veltutengdri leigu og útdeilingu á þjónustukostnaði. Þá heldur það utan um innheimtu, svo sem með útsendingu á kröfum, vanskilainnheimtu innheimtubréfi og tengingu við kröfukerfi.” Meðal annarra þátta lausnarinnar má nefna kostnaðareftirlit vegna óútleigðra eininga, samþættingu við viðhaldskerfi og fyrirbyggjandi viðhald.
”Einn helsti kostur lausnarinnar er sá að hún býður upp á mjög góða yfirsýn yfir afkomu leigueininga og leigusamninga, bæði hvað varðar tekjur og virkt kostnaðareftirlit s.s. vegna viðhalds,” segir Guðjón.
Getur sparað vinnutíma og umsýslu
"Kerfið er mér vitanlega það eina sinnar tegundar og hentar einkar vel fyrirtækjum sem starfa á þessu sviði. Fjölmörg fasteignafélög hér á landi hafa náð eftirtektarverðum árangri og umsvif þeirra orðin mikil. Það er því ljóst að lausn sem þessi er kærkomin en hún getur sparað umtalsverðan vinnutíma og umsýslu. Auk þess sem hægt er að ná mun betri yfirsýn yfir reksturinn og greina hvaða einingar skila viðunandi afkomu."
Guðjón segir að nú þegar dregið hafi úr vexti fyrirtækja sé rétti tíminn til að skoða innviði og styrkja kjarnastarfsemina. Taka upplýsingatæknimál fyrirtækisins í gegn og vera tilbúinn í næstu uppsveiflu. Hann segir ennfremur að Flexible Real Estate sé ein af fjölmörgum SAP lausnum sem komið hafa fram að undanförnu sem henti smærri og meðalstórum fyrirtækjum. „Innleiðingarkostnaður á SAP hefur lækkað til muna sem og rekstrarkostnaður kerfisins.
„Öll fyrirtæki, stór og smá, þurfa góða yfirsýn yfir reksturinn og því þurfa stjórnendur nákvæmar upplýsingar til þess að geta tekið réttar ákvarðanir skjótt og örugglega. Með SAP upplýsingakerfinu gefst fyrirtækjum tækifæri á að nálgast þær upplýsingar sem máli skipta.”
Applicon er alþjóðlegt fyrirtæki með starfsstöðvar í Reykjavík, Stokkhólmi, Kaupmannahöfn og London og hjá fyrirtækinu starfa um 220 manns.
