31.07.2008
Mannauðs- og Launalausnir Applicon
Kópavogsbær hefur tekið í notkun Mannauðs- og Launalausnir Applicon í SAP í þeim tilgangi að einfalda launavinnslu og uppgjör og gera alla þætti mannauðsstjórnunar sem skilvirkasta. Bærinn notaði áður launaútreikninga í DOS umhverfi og hefur starfsfólk þurft að aðlagast miklum breytingum á skömmum tíma.
Ásmundur Richardsson, yfirmaður launadeildar Kópavogsbæjar, segir að verkefnið hafi hins vegar gengið í alla staði vel. „Starfsfólk launadeildar Kópavogsbæjar var jákvætt fyrir breytingunni og hefur lagt mikið á sig til að yfirfærslan megi takast sem best,“ segir Ásmundur.
„Samstarf við sérfræðinga Applicon hefur verið til fyrirmyndar, skipulag gott sem og fagleg þekking starfsmanna. Verkefnið hefur verið unnið á tiltölulega skömmum tíma miðað við umfang og sérfræðingar Applicon hafa haft mikil áhrif á hversu vel tókst til með keppnisanda sínum og jákvæðu viðhorfi,“ segir Anna Birna Snæbjörnsdóttir, starfsmannastjóri Kópavogsbæjar.
Markmið Kópavogsbæjar með því að taka í notkun samsett mannauðs- og launakerfi er að einfalda launaútreikninga og gera mannauðsstjórnun bæjarins enn skilvirkari. „Með þessum hætti vill bæjarfélagið vera í fremstu röð í stýringu mannauðs og tryggja um leið betri þjónustu og upplýsingagjöf til starfsmanna,“ segir Anna Birna.
Mannauðs- og Launalausnir Applicon.
