11.07.2008
Íslenskir aðalverktakar (ÍAV) hafa tekið í notkun innri upplýsingavef í Microsoft Office SharePoint fyrir 600 starfsmenn fyrirtækisins sem eru á yfir 30 vinnustöðum vítt og breitt um landið. Með SharePoint er hægt að miðla upplýsingum og gögnum, sem liggja á mörgum stöðum, til starfsmanna. Markmiðið er að tryggja að starfsfólk geti notað upplýsingar og gögn á einfaldan og öruggan hátt án tillits til staðsetningar í gegnum vafra.
"Starfsemi ÍAV er mjög dreifð og því mikilvægt að geta komið upplýsingum á framfæri til starfsmanna, í gegnum kerfi eins og SharePoint. Upplýsingavefurinn er því nokkurs konar samkomustaður og fréttaveita fyrir 30 vinnustaði ÍAV," segir Guðmundur B. Hólmsteinsson, forstöðumaður tölvudeildar ÍAV. Þá er stefnt að því að tengja SharePoint við Microsoft Dynamics Nav til birtingar á verkum og viðskiptavinum ÍAV í sumar. Ennfremur er SharePoint ætlað að halda utan um upplýsingar um undirverktaka og birgja.
Guðmundur segir að SharePoint hafi orðið fyrir valinu því búnaðurinn búi yfir öflugu öryggi fyrir aðgangsstýringar. Þá sé auðvelt að samþætta SharePoint við Office hugbúnað. "SharePoint er notendavænn búnaður sem fellur vel að öðrum skrifstofuhugbúnaði. Notendur eiga því auðvelt með að læra á búnaðinn." Hann segir að Applicon hafi orðið fyrir valinu því fyrirtækið hafi mikla þekkingu og reynslu í innleiðingu á SharePoint. "Sérfræðingar Applicon eru bæði jákvæðir og faglegir í framkomu."
"Fyrirtæki eru í auknum mæli að tileinka sér þá möguleika sem Microsoft SharePoint felur í sér en Applicon hefur þróað ýmsar SharePoint lausnir sem tryggja meðal annars skilvirkari, öruggari og arðbærari innleiðingar," segir Tinna Björk Hjartardóttir, vörustjóri SharePoint lausna hjá Applicon.
Applicon er eitt stærsta ráðgjafarfyrirtæki landsins í Microsoft lausnum og hefur fyrirtækið yfir að ráða fjölda sérfræðinga á því sviði. Mörg stærri fyrirtæki landsins nýta sér þekkingu Applicon í innleiðingu Microsoft lausna.

