09.07.2008

Fyrir 10 árum var fyrsta Applicon fyrirtækið stofnað, eða þann 1. júní árið 1998 í Danmörku. Það voru þrír fyrrverandi starfsmenn KPMG í SAP ráðgjöf sem stofnuðu Applicon, eða þeir Jacob Mörck, Christian Bruun og Steen Koefoed.

Þegar þremenningarnir höfðu tekið ákvörðun um að hætta störfum hjá KPMG og stofna eigið fyrirtæki tók við ýmis konar undirbúningur eins og ætla má við upphaf á nýjum rekstri. Eitt af því var að finna nafn á fyrirtækið. Ein af fyrstu hugmyndum að nafni var X3M Consulting (Extream Consulting) en þegar frá leið var horfið frá þeirri hugmynd og ákveðið að finna nafn út frá starfseminni (Application Consulting) og úr varð nafnið AppliCon, sem nú er orðið að Applicon.

Hófu starfsemi í einu herbergi
Starfsemin var smá í sniðum í upphafi því starfsfólkið nýtti sér gestaherbergi á heimili Steen sem skrifstofu. Reksturinn tók hins vegar fljótt við sér og nú 10 árum síðar er Applicon með 5 fyrirtæki í Danmörku, Svíþjóð, á Íslandi og í Bretlandi með alls 220 starfsmenn. Þá hefur eignarhlutur Applicon tekið breytingum, en það er nú í eigu Nýherja samstæðunnar. Þrátt fyrir að mikið vatn hafi runnið til sjávar á þessum árum halda þremenningarnir enn tryggð við fyrirtækið og starfa á skrifstofu Applicon í Kaupmannahöfn.