11.06.2008

Applicon hefur verið valið einn af þremur samstarfsaðilum SAP á Norðurlöndum til þess að annast endursölu og þjónustu á lausnum Business Objects, sem er leiðandi í svokallaðri viðskiptagreind (Business Intelligence). Viðskiptagreind er verkfæri og aðferðir til þess að snúa gögnum yfir í aðgengilegar upplýsingar fyrir upplýsta ákvarðanatöku í fyrirtækjarekstri.

Applicon hefur nú þegar á að skipa sérfræðingum í Business Objects lausnum og meðal annars unnið slík verkefni fyrir fjármálafyrirtækið De Lage Landen í Stokkhólmi. Hins vegar hyggst Applicon efla Business Objects þekkingu fyrirtækisins enn frekar með þátttöku í sérstöku verkefni á vegum SAP sem nefnist "go4gold".

SAP, sem keypti Business Objects fyrr á þessu ári, ætlar að samþætta ákveðnar einingar fyrirtækjanna og stefnt er að því að sameina þau undir merkjum SAP á komandi mánuðum. "Það er mat óháðra aðila að með þessum samruna verði samhæfðar lausnir SAP og Business Objects í forystu á markaðinum fyrir lausnir sem byggja á viðskiptagreind," segir Kristján Jóhannsson framkvæmdastjóri Applicon á Íslandi.

Hann segir að Applicon á Íslandi hafi markað sér þá stefnu að verða leiðandi í lausnum og þjónustu í viðskiptagreind hér á landi.

Applicon Holding ehf. er dótturfélag Nýherja og rekur fimm Applicon fyrirtæki, í Danmörku, Svíþjóð, Íslandi og Bretlandi. Um 220 starfsmenn starfa hjá Applicon fyrirtækjunum, þar af um 80 á Íslandi.