28.11.2007
Samkeppnisyfirvöld Evrópusambandsins hafa gefið grænt ljós á 4,8 milljarða evra yfirtöku SAP á franska hugbúnaðarfyrirtækinu Business Objects. Fyrr í þessum mánuði höfðu samkeppnisyfirvöld í Bandaríkjunum heimilað yfirtökuna sem ætlað er að gangi í gegn í byrjun næsta árs. Með yfirtökunni styrkir SAP stöðu sína sem leiðandi fyrirtæki í viðskiptahugbúnaði á heimsvísu.
Nú þegar er SAP með yfir 50 prósent markaðshlutdeild á heimsvísu og er velta fyrirtækisins um 10 milljarðar evra á ári. Sala Business Objects í fyrra nam 885 milljónum evra og áætlar SAP að salan tvöfaldist árið 2010 frá því sem nú er.
Business Objects, sem er með höfuðstöðvar sínar í París, hefur löngum verið talið frumkvöðull á sviði viðskiptahugbúnaðar. Lausnir fyrirtækisins ná yfir vítt svið og eru viðskiptavinir þess um 44 þúsund talsins um allan heim.
