13.11.2007
Þau fyrstu sinnar tegundar á Íslandi
Þekking er ekki alltaf til staðar innan fyrirtækja á þeim lausnum sem fjárfest er í. Fyrirtæki þurfa því oft að treysta á utanaðkomandi aðstoð fyrir minniháttar aðgerðir í SharePoint, sem auðveldlega væri hægt að framkvæma innan fyrirtækisins. Nú er tækifæri til að auka þekkingu starfsmanna á SharePoint og þar með möguleikana á að nýta lausnina til fulls. Framundan eru notendanámskeið í SharePoint þar sem ráðgjafar AppliCon miðla þekkingu sinni á lausninni. Tilvalið fyrir verkefnastjóra, vefumsjónarmenn, sérfræðinga og alla þá sem vinna með SharePoint.
Á næstunni: Notendanámskeið fyrir lykilnotendur
21. og 22. apríl 2008 kl: 09:00 - 16:00
Verð: 105.000 kr. pr. pers.
Sjá efnistök námskeiðs: SharePoint_Namskeid_-_Efni
Nánari upplýsingar:
Tinna Björk Hjartardóttir
Sími: 563 6197 tbh@applicon.is
