07.11.2007
Hagnaður SAP, eins helsta samstarfsaðila AppliCon, jókst um 10 prósent á þriðja ársfjórðungi frá því á sama tíma í fyrra. Hagnaðurinn var 408 milljónir evra samanborið við 370 milljónir í fyrra. Þetta er meiri hagnaður en helstu fjármálasérfræðingar höfðu gert ráð fyrir, en þeirra spá hljóðaði upp á 405 milljónir evra. Tekjur SAP jukust um 9 prósent í fjórðungnum og námi 2,42 milljörðum evra samanborið við 2,21 milljarð evra í fyrra.
Þá var tilkynnt í gær að bandaríski smásölurisinn Wal-Mart hafi gert samning um innleiðingu hugbúnaðar frá SAP. Sá samningur er gríðarlega umfangsmikill enda Wal-Mart stærsta smásölukeðja heims. Innleiðingin fer fram í nokkrum þrepum og er áætlað að því fyrsta ljúki árið 2010. Tíðindi af þessum samningi koma einungis viku eftir að tilkynnt var um að SAP hyggst kaupa franska fyrirtækið Business Objects.
