22.10.2007
Með yfirtökunni er ljóst að SAP verður enn um sinn leiðandi fyrirtæki í viðskiptabúnaði á heimsvísu. Nú þegar er SAP með yfir 50 prósent markaðshlutdeild á heimsvísu og er velta fyrirtækisins um 10 milljarðar evra á ári. Sölur Business Objects námu í fyrra 885 milljónum evra og áætlar SAP að salan tvöfaldist árið 2010 frá því sem nú er.
Business Objects, sem er með höfuðstöðvar sínar í París, hefur löngum verið talið frumkvöðull á sviði viðskiptahugbúnaðar. Lausnir fyrirtækisins ná yfir vítt svið og eru viðskiptavinir þess um 44 þúsund talsins um allan heim. „Sameining SAP og Business Objects kemur til með að hagnast viðskiptavinum, samstarfsaðilum, stjórnendum og hluthöfum. Við erum því hæstánægðir að bjóða Business Objects velkomin í hóp SAP,“ segir Henning Kagermann, framkvæmdastjóri SAP.
