03.10.2007

- áfanginn náðist í 10 ára afmælismánuði SAP á Íslandi


AppliCon, sem er alþjóðlegt fyrirtæki með höfuðstöðvar á Íslandi, fær gullvottun SAP fyrir framúrskarandi árangur í sölu, þjónustu og þróun á SAP-lausnum. SAP hefur þróað og framleitt viðskiptahugbúnað í 35 ár og er einn stærsti framleiðandinn á því sviði á heimsvísu. Fyrirtækið styðst við net samstarfsaðila og veitir þeim vottun í samræmi við þekkingu innan fyrirtækjanna og árangur. Gullvottun er efsta stig vottunarkerfis SAP.

Um þessar mundir eru tíu ár frá því SAP-lausnir hófu innreið sína á Íslandi. Í október 1997 var stofnuð deild innan Nýherja með það fyrir augum að bjóða upp á SAP-lausnir hér á landi. Sú deild var hluti af hugbúnaðarsviði sem síðar var aðskilið frá Nýherja og fékk nafnið AppliCon árið 2005 í kjölfar þess að Nýherji keypti danska SAP-ráðgjafafyrirtækið AppliCon A/S. AppliCon rekur skrifstofur á Íslandi, í Danmörku, Svíþjóð og Bretlandi og starfa tæplega 200 manns hjá fyrirtækinu. Velta fyrirtækisins á þessu ári verður um 3 milljarðar kr.

„Það er mikill heiður fyrir AppliCon að hljóta gullvottun SAP. Við lítum á þetta sem viðurkenningu á því að AppliCon sé í fremstu röð SAP-samstarfsaðila á heimsvísu og mun árangurinn án efa nýtast vel við áframhaldandi þróun og markaðssetningu SAP-lausna hér heima og erlendis um ókomin ár. Það er jafnframt skemmtilegt og viðeigandi að þessi tímamót verði um svipað leyti og við höldum upp á tíu ára afmæli SAP á Íslandi,“ segir Kristján Jóhannsson, framkvæmdastjóri AppliCon.

„AppliCon stendur sig frábærlega. Á þessum tíu árum sem SAP-samstarfsaðili hefur þeim tekist að vaxa með viðskiptavinum sínum og allir þekkja hve öflugur vöxtur hefur verið á íslenskum fyrirtækjum síðustu árin. AppliCon er fyrirmynd annarra SAP-samstarfsaðila og hefur tekist sérstaklega vel að sýna hvernig SAP-lausnir geta hentað allt frá smáum upp í mjög stór fyrirtæki,“ segir Jens Bager, sölustjóri SAP í Danmörku.

AppliCon hefur síðustu ár vakið athygli fyrir þróunarvinnu við SAP-lausnir fyrir fjármálageirann. Fyrirtækið innleiddi m.a. SAP-bankalausnir hjá Kaupþingi í Svíþjóð sem hlaut viðurkenningu fagtímaritsins The Banker sem árangursríkasta upplýsingatækniverkefni kjarnabankastarfsemi árið 2006. AppliCon hefur jafnframt smíðað netbankalausn sem keyrir á SAP-grunni og mun setja hana á markað í haust.

Á Íslandi hefur AppliCon innleitt SAP-lausnir hjá mörgum af stærstu fyrirtækjum og stofnunum landsins. Búast má við að þeim fari fjölgandi á komandi misserum þar sem SAP leggur sífellt meiri áherslu á þróun hugbúnaðarlausna fyrir smærri og meðalstór fyrirtæki og hefur gefið út að það hyggist nær þrefalda fjölda viðskiptavina á næstu þremur árum.